Heimsókn frá Íslandi og Lífstílsbreytingar

Freyr bróðir lenti fyrir viku síðan eftir að hafa verið á frumkvöðlahátíð í Danmörku. Þessir frumkvöðlar eiga það til að drekka helvíti mikið þannig hann Freyr minn var smá þreyttur eftir ferðalagið. Við leyfðum honum að sjálfsögðu að leggja sig og héldum svo út í drykki og mat að fagna heimsókninni. Það var mikið drukkið þessa ferð og hef ég meira og minna verið á dollunni eftir að Freyr fór. Það gengur ekki að taka viku í Þýskalandi fulla af hreyfingu og hollum mat og hoppa svo beint í fimm daga bender. Líkaminn er ekki alveg að átta sig á mér. Ég átta mig svosem ekkert á sjálfum mér, en það er önnur saga. Erfitt að vera atvinnudrykkjumaður og halda sér í góðu líkamlegu formi á sama tíma. Allavega fyrir mig, ég þyrfti að velja hvora leiðina ég ætla.

Þetta var frábær tími, góður matur, gott rauðvín og góður bjór. Veðrið var nú ekki alveg nógu spænskt, Freyr hefur tekið smá íslenskt veður með sér. Rigning, skýjað, þrumur og eldingar. Fullmikill óþarfi kannski en síðustu dagar eftir að Freyr fór hafa verið draumi líkjast, veðurlega séð. Töttögu og femm gráður og sól takk fyrir pent. Fínt kannski að þið Íslendingarnir haldið appelsínugulu viðvörunum bara fyrir ykkur takk fyrir. En Freyr á eftir að koma aftur og þá mun ég persónulega sjá til þess að hann fái alvöru spænskt veður.

Freyr tók okkur á klúbb hérna í Barcelona, sem líkist Kjarval á Íslandi. Þar fékk ég að upplifa það að vera alvöru VIP. Við erum að tala um að það var dresscode. Ég kreysti fram það fínasta sem ég átti, hvít skyrta og svartar buxur. Alltaf verið sáttur í kozybuxum og hettupeysu þannig já, hvít skyrta og svartar buxur var það besta sem ég gat kreist fram. Einnig tók ég ekki með fína skó þannig ég var þokkalega fínt klæddur í converse skóm. Ákveðið lestarslys en ég komst inn! Klúbburinn lánaði mér jakka og ég leit út eins og milljón dollarar, fyrir utan convers skóna en þið vitið, þetta snýst allt um attitude. Fake it till you make it baby.

Sama kvöld breyttum við um gír og fórum á sports bar og fengum bjórkönnu og fötu af bjór. Fórum í beerpong og rústuðum einhverjum heimskum bretum. Réttara sagt þá rústaði Ína einhverjum heimskum bretum. Ég og Freyr vorum gjörsamlega gagnslausir í þessari viðureign en hún Ína fokking Guðjónsdóttir kom, sá og sigraði allt og alla. Allir á staðnum fylgdust með þegar Ína hitti síðasta boltanum ofan í glasið og allt varð vitlaust. Tónlistin í botn, confetti út um allt og áhorfendur öskruðu. Núna skil ég afhverju íþróttamenn leggja á sig alla vinnuna í að vera íþróttamenn. Fagnaðarlætin. Get ímyndað mér það að skora sigurmarkið á HM sé nokkuð svipað og þessi sigur í beerpong.

tempImage7W2X04.gif
Þessar myndir eru teknar sama kvöldið. Sumir myndu kalla mig kameljón, aðrir eitthvað annað. Dæmi hver fyrir sig.

Þessar myndir eru teknar sama kvöldið. Sumir myndu kalla mig kameljón, aðrir eitthvað annað. Dæmi hver fyrir sig.

Eftir æðislega fimm daga fór Freyr núna á föstudaginn og er á leiðinni heim að undirbúa útvarpsþáttinn Brodies, sem byrjar á FM957 næstu helgi. Bróðir minn, útvarpsmaður á FM. Ferðin fór einnig mikið í að fullkomna “HÉR Á FM” röddina hans Freys.

Helgin hjá okkur var nokkuð róleg, fórum að undirbúa okkur fyrir komandi vikur þar sem undirbúningsnámið hjá mér byrjar strax á morgun. Í undirbúning verða eftirfarandi námskeið; Introduction to Business Economics, Management Essentials og Introduction to Accounting and Finance. Það er nú fínt að ég rifji þetta aðeins upp og þá sérstaklega fjármálapartinn þar sem sú kennsla hefur eitthvað farið framhjá mér í fortíðinni. Mjög fyndið að ég valdi mér viðskiptagrein sem framhaldsnám, þar sem ég fór í sálfræði til að forðast viðskipti yfir höfuð. Alltaf verið mjög ákveðinn í því sem ég vil gera.

Núna er allt sett á fullt og stefnan er að vakna 07:00 alla morgna og fara í ræktina. Já, ég hef ákveðið að vera líkamsræktarjöfur. Ætla að verða einhver heilbrigðasti maður á jörðinni. Engar áhyggjur samt, ég leyfi fyllibyttunni í mér að njóta af og til. Snýst um að finna gott jafnvægi þarna á milli.

Þar til næst.


Previous
Previous

Holdgervingur Heilbrigðs Lífstíls

Next
Next

Ferðalagið til Þýskalands